1.2.2009 | 16:44
Hvað voru RÚV að reykja?
Köttað á kynningu nýrrar ríkisstjórnar til að sýna úrslitaleik HM í Zagreb (þess má geta að Íslendingar voru ekki á mótinu). Forgangsröðunin greinilega í lagi, snillingar.
Hvert er hlutverk Ríkisútvarpsins? Jú, að sýna handbolta utan úr heimi.
|
Slá skjaldborg um heimilin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


Alvy Singer
Andrés.si
Björn Hólmsteinsson
Guðmundur Gunnlaugsson
Hlöðver Ingi Gunnarsson
Ingibjörg
Jóhann Alfreð Kristinsson
Maggi Trymbill
Páll Ingi Kvaran
Snowman
Stefán Friðrik Stefánsson
Þórður Gunnarsson



Athugasemdir
Hold your horses! Þeir sýndu áfram beint á netinu eins og visir.is og þetta voru nú ekki nema 3-4 mínútur af ræðuhöldum SJS. Allt það mikilvægasta hafði þegar komið fram.
so (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 16:50
Ég hef aldrei verið eins reiður úr í RÚV.
Þetta er skammarlegt !
Síðan sýndi Stöð 2 ekki frá öllum spurningunum úr sal.
Mig langar til að sjá spurningar frá erlendum blaðamönnum.
Óskar (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 16:52
Sammála þér Friðrik trúði vart mínum eigin augum og eyrum klippt á fundinn í miðjum klíðum, til að koma að auglýsingum og handbolta. Þetta er rakin dónaskapur bæði gagnvart þeim sem fundinn sátu og ekki síður við okkur sem höldum þessum imbakassa uppi.
Kveðja
Ari Guðmar Hallgrímsson, 1.2.2009 kl. 16:53
"Sýnt verður frá síðari hluta blaðamannaviðtals í hálfleik" rennur efst yfir skjáinn
Sigurjón Þórsson (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 16:57
Engu að síður fáránlegt að brjóta fundinn upp með þessum hætti. Hefði allt eins mátt koma síðar inn í leikinn þegar fundinum væri lokið. Síðan hefðu þeir sem dauðlangaði að sjá fyrstu mínúturnar getað séð leikinn í endursýningu. Bara vanvirðing við þá sem reiða sig á ríkismiðilinn.
Friðrik Árni Friðriksson, 1.2.2009 kl. 17:01
Það er bannað að reykja á RUV. Spurning hvað þeir voru að drekka...
Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 17:07
Að sýna það á netinu gagnast varla þeim landsmönnum sem ekki eru netvæddir? Hvað með eldra fólkið sem notar vart netið? Á það að horfa á handbolta þegar ný ríkisstjórn er mynduð?
Burt með Pál Magnússon!
Maggi (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 17:09
greinilegt hver er ennþá með tökin á rúv það er hann Dabbi gamli 1 simtal i palla littla.. Djö lið
lina (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 17:31
Helv... hystería er þetta. Handbolti er mikilvægari heldur en stjórnarmyndun.
Ólafur Jóhannsson, 1.2.2009 kl. 19:44
RÚV hefur oft verið kallað Bláskjár og það ekki að ástæðulausu...
Guðmundur (IP-tala skráð) 1.2.2009 kl. 22:19
Og til að toppa allt seikuðu þeir stundinni okkar
,nei í alvöru talað, mér gæti ekki verið meira sama um þetta allt saman, búinn að fá meira en nóg af þessari vitleysu í þessu bananalýðveldi sem við búum í.
Grétar Ómarsson, 2.2.2009 kl. 00:02
Ríkisstjórnin hefði bara getað drullast til að mæta á réttum tíma og þá hefði þetta ekki verið vandamál. Bara að þau verði ekki svona sein að vinna líka.
Gísli (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 00:04
Kjaftæði, þetta var úrslitaleikurinn á HM! Búið að sýna frá þessu bulli í alþingi endalaust mikið í dag og ekki eins og eitthvað nýtt hafi verið að koma fram. Þú gast þá bara skipt yfir á stöð2!
hs (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 00:11
ennþá er Davíð kennt um allt sem aflaga á að hafa farið. hlægilegt!
Auðvutað átti að sýna handboltann. Þó ekki væri nema til að gefa fréttamönnunum tækifæri til að klippa til bullið í steingrími joð. Svo var þetta líka almennilegur handbolti og alveg djöfull sem frakkarnir eru góðir.
við fáum sjálfsagt alveg nóg af þessari ríkisstjórn næstu dagana.
Grétar (IP-tala skráð) 2.2.2009 kl. 01:38
Frikki, varstu ekki að vinna ? Gastu ekki gert eitthvað ?
Snowman, 13.2.2009 kl. 02:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.