Smá ruglingur

Ég held að Sigurður G. sé á villigötum hvað varðar ummæli hans um aðgang að gögnum. Fæ ekki séð að nefndinni sé á neinn hátt skylt að veita mönnum aðgang að gögnum nefndarinnar, hvorki aðilum sem skýrslan varðar beinlínis né öðrum, sbr. 16. gr. laganna um rannsóknarnefndina nr. 142/2008:

16. gr. Nefndin ákveður sjálf hvaða upplýsingar eða tilkynningar hún birtir opinberlega um störf sín þar til nefndin hefur skilað Alþingi skýrslu skv. 15. gr. Sama gildir um aðgang að gögnum sem nefndin aflar. (áh. mín)

Með öðrum orðum hvílir engin lagaskylda á nefndinni til að veita aðgang að gögnum í þeim tilvikum sem Sigurður nefnir, heldur ákveður nefndin alfarið hvort hún veiti slíkan aðgang.

Þá er ljóst að reglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um aðgang aðila máls að gögnum eiga ekki við þegar af þeirri ástæðu að nefndin er undanþegin langflestum ákvæðum stjórnsýslulaga, sbr 2. mgr. 17. gr. laganna. Hið sama gildir um upplýsingalög nr. 50/1996. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að nefndin starfar á vegum Alþingis, ekki framkvæmdarvaldsins. Því verður það að teljast misskilningur hjá Sigurði að tengja nefndina fyrirvaralaust við reglur stjórnsýsluréttarins sem gilda aðeins um þá aðila sem falla undir framkvæmdarvaldið.

Andmælaréttur þeirra sem fjallað er um í skýrslunni byggist skv. framansögðu ekki á reglum stjórnsýsluréttarins, heldur sérstöku ákvæði í lögum nr. 142/2008 sem er eftirfarandi:

13. gr. Að gagnaöflun lokinni gerir nefndin þeim sem ætla má að orðið hafi á mistök eða hafi orðið uppvís að vanrækslu í starfi skriflega grein fyrir afstöðu sinni og eftir atvikum lagatúlkun á þeim atriðum sem varða þátt hans í málinu og nefndin íhugar að fjalla um í skýrslu til Alþingis. Nefndin veitir viðkomandi hæfilegan frest til að gera skriflega athugasemd við þessi atriði. (áh. mín)

Í þessu ákvæði er hvergi rætt um rétt hlutaðeigandi til aðgangs að gögnum sem hann varða, heldur rétt til að andmæla með skriflegri athugasemd til nefndarinnar innan hæfilegs frests sem hún ákveður. Færa má rök að því að í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu teljist vikufrestur meira en hæfilegur fyrir menn til að skila inn athugasemdum hvað þá varðar. Hann hlýtur allavega að vera skemmri fyrst þeir eiga ekki rétt á aðgangi að málsgögnum og þurfa þ.a.l. ekki meiri tíma til að yfirfara þau.

 


mbl.is Allir hafa andmælarétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er nú meira bullið í þér! Þetta var leiðinlegt komment í boði mín eins og þú hefur óskað eftir. Ég gat ekki gert athugasemd við færsluna að neðan því fresturinn rann út.

Jón Gunnar Ásbjörnsson (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband