Smá ruglingur

Ég held að Sigurður G. sé á villigötum hvað varðar ummæli hans um aðgang að gögnum. Fæ ekki séð að nefndinni sé á neinn hátt skylt að veita mönnum aðgang að gögnum nefndarinnar, hvorki aðilum sem skýrslan varðar beinlínis né öðrum, sbr. 16. gr. laganna um rannsóknarnefndina nr. 142/2008:

16. gr. Nefndin ákveður sjálf hvaða upplýsingar eða tilkynningar hún birtir opinberlega um störf sín þar til nefndin hefur skilað Alþingi skýrslu skv. 15. gr. Sama gildir um aðgang að gögnum sem nefndin aflar. (áh. mín)

Með öðrum orðum hvílir engin lagaskylda á nefndinni til að veita aðgang að gögnum í þeim tilvikum sem Sigurður nefnir, heldur ákveður nefndin alfarið hvort hún veiti slíkan aðgang.

Þá er ljóst að reglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um aðgang aðila máls að gögnum eiga ekki við þegar af þeirri ástæðu að nefndin er undanþegin langflestum ákvæðum stjórnsýslulaga, sbr 2. mgr. 17. gr. laganna. Hið sama gildir um upplýsingalög nr. 50/1996. Í þessu samhengi er rétt að taka fram að nefndin starfar á vegum Alþingis, ekki framkvæmdarvaldsins. Því verður það að teljast misskilningur hjá Sigurði að tengja nefndina fyrirvaralaust við reglur stjórnsýsluréttarins sem gilda aðeins um þá aðila sem falla undir framkvæmdarvaldið.

Andmælaréttur þeirra sem fjallað er um í skýrslunni byggist skv. framansögðu ekki á reglum stjórnsýsluréttarins, heldur sérstöku ákvæði í lögum nr. 142/2008 sem er eftirfarandi:

13. gr. Að gagnaöflun lokinni gerir nefndin þeim sem ætla má að orðið hafi á mistök eða hafi orðið uppvís að vanrækslu í starfi skriflega grein fyrir afstöðu sinni og eftir atvikum lagatúlkun á þeim atriðum sem varða þátt hans í málinu og nefndin íhugar að fjalla um í skýrslu til Alþingis. Nefndin veitir viðkomandi hæfilegan frest til að gera skriflega athugasemd við þessi atriði. (áh. mín)

Í þessu ákvæði er hvergi rætt um rétt hlutaðeigandi til aðgangs að gögnum sem hann varða, heldur rétt til að andmæla með skriflegri athugasemd til nefndarinnar innan hæfilegs frests sem hún ákveður. Færa má rök að því að í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu teljist vikufrestur meira en hæfilegur fyrir menn til að skila inn athugasemdum hvað þá varðar. Hann hlýtur allavega að vera skemmri fyrst þeir eiga ekki rétt á aðgangi að málsgögnum og þurfa þ.a.l. ekki meiri tíma til að yfirfara þau.

 


mbl.is Allir hafa andmælarétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðifréttir

Að þessi manneskja sé hugsanlega á leiðinni út í umferðina?

Leiðinleg komment frá Jóni Gunnari Ásbjörnssyni óskast!


mbl.is Náði skriflega prófinu í 950. tilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

*Hrotur*

ZZZZ... Ha, eruði búin að þessu? Magnað að þau þurfi svona langan umþóttunartíma í ljósi þess að þau hafa setið saman í ríkisstjórn í nokkra mánuði. Fyrirboði um það sem koma skal, því miður.


mbl.is Ríkisstjórn í burðarliðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátu menn ekki bara sleppt myndinni?

Dakar rallýið í Senegal? Myndin er fáránleg í samhengi við fréttina. Er engin hugsun á bakvið myndavalið, er orðinu "Senegal" bara flett upp í myndasafninu og fyrstu myndinni, sem kemur upp, slengt í fréttina? Þótt það sé ekki fullkomlega sambærilegt þá mætti líkja þessu við að fjalla um fótboltaleik í Ísrael og myndin við fréttina væri af átökunum á Gaza svæðinu, þau eru nú alltaf í tengslum við Ísrael. Í þessari frétt hefði allt eins verið hægt að birta landslagsmynd eða mannlífsmynd frá einhverju Afríkuríki þótt ekki væri frá Senegal - hver myndi fatta það?

Segjum að forseti Íslands héti Jóhannes Grímsson; hann myndi svo láta lífið sökum aldurs og af einhverjum ástæðum ætti mbl enga mynd af honum í safninu. Þá væru góð ráð dýr, en mbl myndi líklega bara birta mynd af Jóhannesi Grímssyni, kokkinum í mötuneytinu, hann er nú alnafni.


mbl.is Lík samkynhneigðs manns grafið upp í tvígang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða hvaða

Hvað er þetta, hann er kannski bara feiminn við "stelpurnar" á þessum aldri, hver kannast ekki við það?

 


mbl.is Skammast yfir samkynhneigðum fíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordæmisgefandi dómur

Hér er klárlega um að ræða framúrstefnulega túlkun á pyndingahugtakinu hjá spænskum dómstólum. Að því er varðar íslenskan rétt gefur að finna svohljóðandi ákvæði í stjórnarskránni:

68. gr. Engan má beita pyndingum né annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Nú er gamli kallinn á efri hæðinni oft með hádegisfréttir útvarps frekar hátt stilltar, aðallega á sunnudögum. Spurning hvort ég láti reyna á þetta fyrir dómstólum og vísi til pyndingaákvæðisins í 68. gr. stjórnarskrár og umrædds dóms héraðsdómsins í Barcelona. Skýrt fordæmi, steinliggur.

 


mbl.is Bareigandi dæmdur í fangelsi fyrir hávaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað voru RÚV að reykja?

Köttað á kynningu nýrrar ríkisstjórnar til að sýna úrslitaleik HM í Zagreb (þess má geta að Íslendingar voru ekki á mótinu). Forgangsröðunin greinilega í lagi, snillingar.

Hvert er hlutverk Ríkisútvarpsins? Jú, að sýna handbolta utan úr heimi.

 


mbl.is Slá skjaldborg um heimilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HFF

Helvítis mótmælendur!

Helvítis lögga!

Helvítis fokking fokk!

 


mbl.is Beittu kylfum á mótmælendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það athugast

að neðangreind spá stóðst að engu leyti.

 


Staðfest

Próf í kröfurétti I, haustið 2008 (staðfest):

1. Efnisspurning: Gerið grein fyrir ákvörðun almennra vaxta og dráttarvaxta af fjárkröfum sem greiðast að hluta til hérlendis og að hluta til í útlöndum, með tilliti til lagaskilareglna alþjóðlegs einkamálaréttar. Fjallið því næst ítarlega um svokallaða Raibor-vexti Seðlabanka Íslands, mismunandi aðferðir og sjónarmið við ákvörðun vaxtafótar slíkra vaxta og dómaframkvæmd. (35%)

2. Raunhæft verkefni: Nonni fór með bíl sinn í viðgerð og óskaði allsherjar viðgerðar. Þegar bíllinn kom aftur úr viðgerð var hann verri en áður en hann fór í viðgerð.

Fjallið um öll hugsanleg kröfuréttarleg álitaefni. (25%)

3. Efnisspurning: Þorgeir Örlygsson, ævi og störf. Fjallið sérstaklega um farsælan feril Þorgeirs við EFTA-dómstólinn. (40%)

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband